Tónleikar til styrktar endurbótum á Grindavíkurkirkju
„Nýja“ Grindavíkurkirkjan var tekin í notkun árið 1982 en sú gamla, við Kirkjustíg, var formlega afhelguð í messu þann 12. september 1982. Viðhaldi hefur verið ábótavant og nú þolir það ekki lengur bið.
Endurbætur verða kostnaðarsamar og því var ákveðið að blása til fjáröflunartónleika miðvikudagskvöldið 26. október, að sjálfsögðu í Grindavíkurkirkju.
Fram koma:
- Grindavíkurdætur
- Dagbjartur Willardsson
- Tómas Guðmundsson
- Jón Emil Karlsson
- Gígja Eyjólfsdóttir og Atli Geir Júlíusson
- Feðginin Sigurbjörn Daði Dagbjartsson og Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir
- Kór Grindavíkurkirkju
- Birna Rúnarsdóttir
Tónlistarstjóri er Kristján Hrannar Pálsson.
Allur ágóði rennur í endurbótasjóð en frjáls framlög verða við hurð en einnig hægt að leggja beint inn á reikning: 0143-15-380112, kt. 410272-1489.
Grindvíkingar eru hvattir til að sýna stuðning sinn við kirkjuna sína í verki og mæta á tónleikana og styðja við þarft málefni.