Tónleikar: Píanó og klarinett í Keflavíkurkirkju
Sigurjón Bergþór Daðason klarinettuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari halda tónleika í Safnaðarheimilinu Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi í kvöld 5.ágús. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Á efnisskrá verða verk fyrir klarinett og píanó eftir tónskáld á borð við Schumann, Haydn, Bozza, Poulence og Denisov.
Aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 krónur og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.