Þriðjudagur 19. febrúar 2002 kl. 23:59
Tónleikar og ókeypis kennsla á laugardag

Hinn árlegi „Dagur tónlistarskólanna” verður haldinn laugardaginn 23. febrúar. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á starfsemi tónlistarskólanna í landinu. Tónlistarskólar efna þá til margvíslegrar dagskrár fyrir almenning.Af þessu tilefni efnir Tónlistarskóli Reykjanesbæjar til dagskrár í skólanum, Austurgötu 13, frá kl.14 til 16 á Degi tónlistarskólanna. Tónleikar verða á sal þar sem fram koma ein af lúðrasveitum skólans, eldri strengjasveitin og 4-5 smærri hljómsveitir. Einnig er áhugasömum Suðurnesjabúum boðið upp á stutta kennslustund á hljóðfæri eða í söng, allt eftir áhugasviði hvers og eins. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem langar að kynnast því hvernig er að læra á hljóðfæri eða að læra að syngja og verða kennarar skólans til taks í skólanum á Austurgötu 13 frá kl.14 til 16.
Tónleikarnir og kennslan er ókeypis og eru allir velkomnir.