Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tónleikar og barnaskemmtun á sunnudag
María Ósk Kjartansdóttir.
Föstudagur 7. febrúar 2014 kl. 20:00

Tónleikar og barnaskemmtun á sunnudag

- í Norðurljósasal Hörpu, til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu.

Ég læt ekkert stöðva mig,“ segir María Ósk Kjartansdóttir, einstæð móðir sem er búin að fá fimm heilablæðingar. Þá síðustu fékk hún 12. október í fyrra. María Ósk stendur fyrir tónleikum og barnaskemmtun í Norðurljósasal Hörpu, n.k. sunnudag, 9. febrúar og mun hagnaður af skemmtununum renna til rannsókna á arfgengri heilablæðingu.

Margir landsþekktir tónlistarmenn munu koma fram og dagskráin er á þessa leið: 
 
Tónleikarnir kl 20:00
Bubbi Morthens, Lögreglukórinn, Verslunarskólinn með atriði úr sýningunni sinni Með allt á hreinu, Þórunn Antonía, Friðrik Dór, Einar Ágúst og Sísí Ey. Kynnir verður Auðunn Blöndal.
Aðgangseyrir er kr. 3900 og hægt er að nálgast miða hér eða við innganginn.
 
Barnaskemmtun kl 14:00
Þar munu koma fram Íþróttaálfurinn, Solla stirða, Friðrik Dór og töframaðurinn Einar einstaki. „Við vildum hafa einhverja dagskrá fyrir krakkana líka,“ segir María Ósk. Þá segir hún óvænar uppákomur verða. 
 
Móðir Maríu og systir dóu úr arfgengri heilablæðingu, sem er alíslenskur sjúkdómur og hefur verið lengi í fjölskyldu Maríu. Það eru helmingslíkur á að fá þennan sjúkdóm ef foreldri er með hann og hann erfist bæði í karllegg og kvenlegg. María fæddist með sjúkdóminn, en vissi ekki að að hún væri með hann fyrr en hún varð 17 ára. „Ég þurfti að læra að tala og ganga á ný eftir 3. og 4. heilablæðingarnar. Er komin yfir það versta núna og hlakka til tónleikanna,“ segir María Ósk bjartsýn.
 
María Ósk hefur staðið fyrir viðburðum og söfnun áður og hingað til hafa safnast um þrjár milljónir, sem runnið hafa í sama sjóð. Hún vill færa Kolfinnu, Elínu, Maggý, Elínu og Tinnu fyrir ómetanlega aðstoð við undirbúning.
 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024