Þriðjudagur 9. mars 2010 kl. 10:29
Tónleikar lengra kominna nemenda skólans í Stapa á morgun
Tónleikar lengra kominna nemenda við Tónlistarskóla Reykjanesbnæjar verða haldnir á morgun, miðvikudaginn 10. mars, kl. 19.30 í Stapa, Hljómahöllinni.
Mjög fjölbreytt efnisskrá, bæði einleikur og samleikur. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Skólastjóri