Bygg
Bygg

Mannlíf

Tónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju
Miðvikudagur 23. ágúst 2006 kl. 09:26

Tónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju

Strengjasveit og Þjóðlagasveit Tónlistarskólans í Kyjov halda tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju, miðvikudaginn 30. ágúst  kl. 20.00 og er aðgangur ókeypis. Tónleikarnir eru hluti af Ljósanótt. Suðurnesjamenn eru hvattir til að sækja þessa tónleika sem örugglega verða örugglega bæði athyglisverðir og skemmtilegir.

Sumarið 2005  fór Strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í heimsókn til borgarinnar Kyjov í Tékklandi en einn af kennurum skólans er ékkneskur. Vel var tekið á móti hópnum og spilaði Strengjasveitin víða. Nú endurgeldur Tónlistarskólinn  í  Kyjov  heimsóknina  og til Reykjanesbæjar eru komnar Strengjasveit og Þjóðlagasveit Tónlistarskólans í Kyjov ásamt fylgdarliði, í boði Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, alls rúmlega 30 manns.


Fyrir utan að leikið er á hefðbundin strengjahljóðfæri í þjóðlagasveitinni, er leikið á hljóðfærið  Cymbalom, en hljóðfærið er einkennandi fyrir þjóðlagatónlist í Mið-Evrópu. Efnisskrá þjóðlagasveitarinnar einkennist af tónlist frá Kyjov. Auk þess kemur þjóðlagasveitin fram í þjóðbúningum Kyjov-héraðsins, sem eru litríkir og fallegir. Strengjasveitin leikur kammertónlist af ýmsu tagi.


Mynd: Tónlistarfólkið frá Kyjov.

Bílakjarninn
Bílakjarninn