Tónleikar í Kirkjulundi til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja
Tónleikar verða haldnir í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju sunnudaginn 14. desember kl. 20:00 til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja
Velferðarsjóður Suðurnesja hefur það að markmiði að veita stuðning til einstaklinga og fjölskyldna á svæðinu til viðbótar þeim úrræðum sem þegar hafa verið í boði.
Velferðarsjóður á Suðurnesjum er starfræktur í samstarfi við Hjálparstarf Kirkjunnar. Sjálfur stuðningurinn fer fram í gegnum þá aðila sem miðla styrkjum til fólks hér á svæðinu. Ber þar að nefna kirkjurnar og ýmis líknarfélög. Þau senda erindið áfram til Hjálparstarfsins sem veitir úr sjóðnum.
Allir geta lagt sjóðnum lið, bæði með beinum fjárframlögum og ekki síður ýmsu framtaki og söfnun.
Á tónleikunum koma fram:
* Kvennakór Suðurnesja
* Kór Keflavíkurkirkju
* Karlakór Keflavíkur
* Gleði- og gospelkór Hjálpræðishersins
* Jóhann Smári Sævarsson
* Sigurður Flosason
* Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið.
* Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson
* Kynnir tónleikanna er Hjálmar Árnason.