Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Tónleikar í Grindavíkurkirkju í kvöld
Þriðjudagur 20. janúar 2009 kl. 09:59

Tónleikar í Grindavíkurkirkju í kvöld

Þriðjudagskvöldið 20. janúar kl. 20 verða haldnir hljómleikar í Grindavíkurkirkju. Á tónleikunum koma fram tenórsöngvarinn Jón Þorsteinsson og Hörður Áskelsson orgelleikari.

Efnisskrá tónleikana stendur saman af sálmum og trúarljóðum sem þeir félagar gáfu út á hljómdiski er ber heitið Ó, Jesú, að mér snú en þar syngur Jón Þorsteinsson 23 sálma við undirleik Harðar.

Í tilefni af útkomu hljómdisksins efndu þeir Jón og Hörður til tónleika m.a í Akureyrar- og Hallgrímskirkju við húsfylli. Nú er röðin komin að Grindavíkurkirkju og er það von tónleikahaldara að fólk sjái sér fært um að mæta og njóta þessarar einstöku efnisskrár í flutningi úrvals flytjenda.

JÓN ÞORSTEINSSON fæddist á Ólafsfirði árið 1951. Hann hóf söngnám í Osló árið 1974 hjá óperusöngkonunni Marit Isene, sem þá var einn virtasti söngkennari Norðmanna, en hélt síðan námi sínu áfram við Den Norske Musikhøgskole. Eftir þriggja ára dvöl í Osló hélt Jón til Árósa í Danmörku og nam þar söng næstu þrjú ár við Det Jyske Musikkonservatorium. Síðan lá leiðin til Modena á Ítalíu þar sem hann stundaði nám hjá hinum heimsfræga söngkennara, Arrigo Pola.
Um tveggja ára skeið söng Jón, fyrstur Íslendinga, í óperukór Wagner-hátíðaleikanna í Bayreuth í Þýskalandi, en árið 1980 urðu þáttaskil á söngferli hans þegar hann fluttist til Hollands og réðst til Ríkisóperunnar í Amsterdam þar sem hann starfaði samfleytt í rúman áratug og söng yfir fimmtíu einsöngshlutverk. Auk þess hefur Jón sungið á óperusviði og í tónleikasal í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum. Á liðnum árum hefur hann einnig sungið með Pólýfónkórnum og fleiri íslenskum kórum, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku hljómsveitinni og í Íslensku óperunni. Einnig hefur hann stundað söngkennslu um árabil á Íslandi og í Hollandi.
Árið 1981 vann Jón Þorsteinsson fyrstu verðlaun í kirkjutónlistarkeppni Konunglega kirkjutónlistarsambandsins í Hollandi og á liðnum árum hefur hann einkum getið sér frægðarorð á meginlandi Evrópu fyrir snjalla túlkun sína á sígildri kirkjutónlist og nútímatónlist.



Hörð Áskelsson þarf vart að kynna en hann hefur frá árinu 1982 verið organisti við Hallgrímskirkju í Reykjavík og byggt þar upp öflugt tónlistarlíf. Hann stofnaði Listvinafélag kirkjunnar og Mótettukór Hallgrímskirkju árið 1982 og árið 1996 stofnaði hann kammerkórinn Schola cantorum. Þá hefur Hörður kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og á árunum 1985-95 var hann lektor í litúrgískum söngfræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands. Einnig hefur hann komið fram sem orgelleikari og stjórnandi á fjölmörgum kór- og orgeltónleikum á Íslandi, í Þýskalandi, Noregi, Frakklandi og víðar. Hann er nú söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
Herði Áskelssyni hefur hlotnast margvíslegur heiður fyrir tónlistarstarf sitt. M.a. hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2001 fyrir tónlistarflutning sinn og árið 2002 var hann útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð kr. 1000

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024