Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Tónleikar í Grindavíkurkirkju annað kvöld
Miðvikudagur 24. september 2008 kl. 11:24

Tónleikar í Grindavíkurkirkju annað kvöld



Annað kvöld, fimmtudagskvöldið 25. september kl. 20.30, verða tónleikar í Grindavíkurkirkju þar sem Tómas Guðni Eggertsson, organisti Grindavíkurkirkju, leikur verk eftir Johann Sebastian Bach og Dietrich Buxtehude. Auk þess mun Kór Grindavíkurkirkju flytja efnisskrá með lögum sem kallast „Nýir söngvar Sindre Eide“  í þýðingu séra Kristjáns Vals Ingólfssonar.



Það hefur verið mikið að gera hjá Kór Grindavíkurkirkju á undanförnum vikum en Kórinn tók þátt í „Sálmafossi” sem fór fram í Hallgrímskirkju á Menningarnótt í Reykjavík í ágúst. Þar héldu Kórar og organistar íslensku kirkjunnar uppi samfelldri tónlistardagskrá. Kór Grindavíkurkirkju var falið það verkefni að flytja fáeina af þeim sálmum sem norski kirkjutónlistarfrömuðurinn Sindre Ejde hefur safnað saman víðsvegar að úr heiminum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í kjölfarið var Kórnum boðið að halda tónleika í Selfosskirkju þann 9. september sl. og nú er Grindvíkingum og nágrönnum boðið til þessara tónleika. Aðgangur er ókeypis.



Mynd/grindavik.is/TGE