Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Tónleikar í bíósal Duushúsa
Mánudagur 18. október 2010 kl. 09:51

Tónleikar í bíósal Duushúsa

Sunnudaginn 24. október kl. 16.00 verða skemmtilegir tónleikar haldnir í Bíósal Duushúsa. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, Herdís A. Jónsdóttir, víóla og Sólveig A. Jónsdóttir píanó munu flytja gestum fjölbreytta efnisskrá. Þar má heyra íslensk sönglög , óperuaríur og lög úr erlendum söngleikjum þar sem söngröddin, víólan og píanóið munu óma í blönduðum samsetningum og útsetningum íslenskra og erlendra tónskálda. Víólan, sem oft er sögð hljóma líkust mannsröddinni, ljær íslensku sönglögunum nýjan hljóm. Seinni hluti efnisskrárinnar er svo helgaður erlendum tónverkum frá 19. og 20. öld en þær stöllur enda á léttum nótum með þekktum lögum úr söngleikjum í útsetningu þeirra sjálfra.

Aðgangseyrir kr. 2.000 en ókeypis fyrir eldri borgara og nemendur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna, Tónlistarfélags Reykjanesbæjar, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Menningarsviðs Reykjanesbæjar og eru styrktir af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.