Tónfræðakeppnin Kontrapunktur á Degi tónlistarskólanna

Í tilefni dagsins, þá stendur Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, eins og í fyrra, fyrir keppni í tónfræðagreinum meðal nemenda skólans, ásamt þekkingu á hljóðfærum og almennri þekkingu í tónlist. Keppnin ber heitið Kontrapunktur og er það nafn fengið frá tónlistarkeppni, sem haldin var af norrænu sjónvarpsstöðvunum fyrir fáum árum.
Í keppninni að þessu sinni, verður tekið í notkun nýtt, sérsmíðað fjölborða bjöllukerfi til að nota í bjölluspurninga-flokknum.
Kontrapunktur er liðakeppni og er hvert lið skipað nemendum hvers tónfræðabekks í skólanum.
Keppnin fer fram á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá kl. 13-18 og keppt verður í 3 riðlum á eftirfarandi tímum:
1. riðill keppir kl. 13, 2. riðill keppir kl. 15, 3. riðill keppir kl.17.
Keppni í hverjum riðli stendur yfir í u.þ.b. klukkustund og fær hvert sigurlið veglega viðurkenningu fyrir frammistöðuna.
Allir eru hjartanlega velkomnir að fylgjast með keppninni.