Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Tómstundaklúbbur Myllubakkaskóla hlaut Hvatningarverðlaunin
Steinar Jóhannsson, Ingibjörg Jóna Kristinsdóttir, Íris Dröfn Halldórsdóttir og Heba Friðriksdóttir tóku við verðlaununum fyrir hönd starfsfólks Myllubakkaskóla.
Mánudagur 4. júní 2018 kl. 14:35

Tómstundaklúbbur Myllubakkaskóla hlaut Hvatningarverðlaunin

Tómstundaklúbbur Myllubakkaskóla hlaut Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar árið 2018. Það voru þau Íris Dröfn Halldórsdóttir, Ingibjörg Jóna Kristinsdóttir, Heba Friðriksdóttir og Steinar Jóhannsson sem tóku við verðlaununum fyrir hönd starfsfólks Myllubakkaskóla.

Um verkefnið segir í tilnefningu: „Tómstundaklúbbur Myllubakkaskóla er fyrir alla nemendur skólans. Haldnir eru fjölbreyttir viðburðir í hverri viku fyrir nemendur. Starfsmenn skólans sjá um þennan klúbb og er hann nemendum að kostnaðarlausu. Aldeilis frábært framtak og skapandi og fjölbreytt starf sem vonandi heldur áfram."
Einnig hlutu sérstaka viðurkenningu starfsfólk Háaleitisskóla fyrir verkefnið Fjölmenningarhátíð í Háaleitisskóla og stjórnendur og kennarar á unglingastigi í Akurskóla fyrir verkefnið Vinnustundir fyrir unglingastig.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar hafa verið veitt um árabil til kennara, kennarahóps eða starfsmanna í leik- og grunnskólum og tónlistarskóla bæjarins. Auglýst er eftir tilnefningum frá bæjarbúum og bárust 16 tilnefningar í ár um mörg áhugaverð verkefni.