Tölvumús veldur usla í Sandgerði
Það þykir nauðsynlegt að nota mús við allar tölvur í dag, en það er ekki sama hvernig mús er notast við. Konurnar sem starfa á Botndýrarannsnóknarstöðinni nota mikið tölvumús við skráningu rannsóknargagna. Svona byrjar stórskemmtileg frétt á samfélagsvefnum 245.is í Sandgerði.
Þar segir að á dögunum kom óvænt lítil mús í Rannsóknarstöðina og vildi heilsa uppá konurnar, sem ekki kunnu að meta slíka heimsókn. Upp hófust þá mikil óp og skrækir og hoppað var upp á borð og stóla, en músavíkingasveit hússins var fljót að mæta vopnuð kústum.
Hófst þá mikill eltingaleikur við blessuðu músina, sem sennilega hefur vitað að engin tölva starfar almennilega án músar. Þar sem hliðarspjald einnar tölvunnar var opið, skaust músin ínn í tölvuna og gerði sig ekki líklega til að koma út aftur. Var þá brugðið á það ráð að bera tölvuna út úr húsinu.
Að lokum yfirgaf litla músin tölvuna, sennilega minnug þess að þar sem hún er ekki tölvumús þá sé hún ekki velkomin aftur.
Fleiri myndir frá bardaganum má finna hér á síðu www.245.is