Töluvert minna brottfall úr FS á milli ára
Brottfall úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur minnkað úr rúmum 11% niður í 7% milli ára.
Brottfall úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur minnkað úr rúmum 11% niður í 7% milli ára. Brotfall þar hefur farið vel yfir 10% undanfarin ár. Skólayfirvöld stefna að því að brottfall fari niður í 5%. „Þetta er jákvæð og ánægjuleg þróun sem vonandi heldur áfram,“ segir Kristján Ásmundsson, skólameistari FS.
Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar sagði aðspurður: „Margt kemur til, starfsfólkið í fjölbraut hefur unnið markvisst með nemendur í áhættuhópi og það hefur mikið að segja. Nemendur koma einnig betur undirbúnir til framhaldsnáms í FS vegna framfara í námi í grunnskóla.“