Bygg
Bygg

Mannlíf

Tólf sporin – Andlegt ferðalag
Þriðjudagur 25. september 2007 kl. 09:22

Tólf sporin – Andlegt ferðalag

Boðið verður upp á Tólf spora starf í Keflavíkurkirkju í vetur. Fjöldi einstaklinga hafa farið í gegnum þessi spor á umliðnum árum og aukið með því lífsgæði sín. Við hvetjum ykkur til að koma og kynna ykkur þetta samfélag sem opnað hefur mörgum nýja sýn á lífið.

Fyrsti fundur verður í Kirkjulundi fimmtudaginn 27. september kl. 19:00.  Þar gefst tækifæri til að kynna sér hvernig Tólf sporin eru unnin í kirkjunni.

Fundirnir verða vikulega kl. 19:00 til 21:00 og er farið yfir kynningarefnið á fyrstu fjórum fundunum en á fjórða fundi er hópunum lokað og fleirum ekki bætt við í það skiptið.

Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta starf þeim að kostnaðarlausu utan þess að þeir þurfa að greiða fyrir vinnubók sem kostar kr. 3.000.-.

Upplýsingar um Tólf spora námskeiðið veitir: María Hauksdóttir í símum 864-5436 og 421-5181 og einnig starfsfólk Kirkjulundar í síma 420-4300.



Bílakjarninn
Bílakjarninn