Tökum nú því sem að höndum ber
segir Steinþór Jónsson á Hótel Keflavík en það er eina hótelið sem hefur verið opið að undanförnu.
Hótel Keflavík er opið og að taka á móti gestum þessa dagana þrátt fyrir COVID-19. Nokkuð hefur verið af erlendum gestum á hótelinu síðustu vikur sem m.a. hafa dvalið þar langdvölum.
„Eftir 34 ár sem hótelstjóri og eigandi Hótel Keflavík þá er óhætt að segja að síðustu vikur og mánuðir hafa verið bæði þeir skrýtnustu og erfiðustu frá upphafi. Ég ákvað strax að hafa hótelið áfram opið, kann bara ekkert annað, þó það sé kannski ekki að skila sér beint tekjulega til skamms tíma enda kostnaður oft sá sami þó gestir séu færri. Hitt er að okkur finnst við bera skyldu til að þjóna gestum sem hafa staðið með með okkur til tuga ára og vera með opið. Við náum þessu aftur til baka á næstu 34 árum,“ segir hann og brosir.
Flestir starfsmenn á hlutabótum
„Flestir starfsmenn hótelsins og KEF veitingastaðarins eru komnir á hlutabótaleiðina,“ segir Steinþór, „en við hjónin höfum staðið vaktina allan sólarhringinn á móti. Það er bara eins og við Hildur gerðum ásamt foreldrum mínum í upphafi og fannst það eðlilegt. Það er því miður alltof algengt að fólk vill vera með þegar vel gengur en hverfur þegar á móti blæs. Við höfum notið velgengni í yfir 30 ár og tökum nú því sem að höndum ber.“
KEF veitingastaður hefur líka verið opinn þrátt fyrir erfiðar aðstæður. „Það er ekki síst til að sýna tryggum viðskiptavinum þakklæti fyrir ótrúlega jákvæðni gagnvart veitingastaðnum. Þegar aðrir loka bítum við á jaxlinn og höfum opið. Við vonum að um leið og samkomubanni lýkur getum við tekið vel á móti öllum bæjarbúum sem vilja hafa góðan veitingastað opinn í sínu nærumhverfi.“
Nú er verið að klára framkvæmdir í móttöku hótelsins sem hafa tafist í því ástandi sem nú er. Steinþór segir að eftir nokkrar vikur muni þar opna m.a. Diamond Bar, „sem verður án efa einn glæsilegasti bar landsins ásamt glerhúsum sem munu geta opnast alveg á fallegum sólardögum.“
Steinþór segist þakklátur fyrir að áherslur eigenda hótelsins síðustu tvö árin voru að fjárfesta í gæðum í stað þess að fjölga herbergjum og gera eitthvað sem ekki hefur sést á hótelum á Íslandi. „Það er gaman að gera þannig hluti í Keflavík. Þá verður það stór dagur þegar síðustu herbergin á Hótel Keflavík hafa verið endurnýjuð og við losnað við gólfteppin. Teppalaus herbergi, sem og krafa um baðkör á herbergjum, er einfaldlega grunnkrafa nú á tímum og þangað eru við að fara. Þetta verður verður erfiður tími en framkvæmdum er að ljúka og þegar erlendir gestir koma aftur verðum við tilbúin með glæsileg fjögurra og fimm stjörnu hótel eins og þau gerast best í heiminum. Það ásamt veitingastaðnum KEF og Diamond Bar mun vera öflug lyftistöng fyrir bæjarfélagið okkar,“ segir Steinþór.
Jórdanir gistu á hótelinu vikum saman
Það eru ekki bara þotur Icelandair sem hafa staðið verkefnalausar á Keflavíkurflugvelli vikum saman. Airbus A330-200 frá Jordan Aviation í Jórdaníu stóð verkefnalaus á Keflavíkurflugvelli í næstum mánuð. Áhöfnin, fjórtán manns, gisti á Hótel Keflavík á meðan vélin stóð á stæði á austurhlaði Keflavíkurflugvallar.
„Jú, það er rétt að áhöfnin gisti hjá okkur í nokkrar vikur,“ segir Steinþór. Áhafnir einkaflugvéla sem hafa viðkomu á Keflavíkurflugvelli hafa einnig gist á hótelinu síðustu vikur, sem og vinnuhópar, þannig að það er líf á hótelinu alla daga.