Bygg
Bygg

Mannlíf

Tók Hörð Axel  með vinstri  í þriggja- stigakeppni
Mánudagur 27. apríl 2020 kl. 15:44

Tók Hörð Axel með vinstri í þriggja- stigakeppni

Guðmundur Steinarsson, oftast kallaður Gummi Steinars, giftur Önnu Pálu og eigum við tvo stráka, þá Guðna Ívar og Jóhann Gauta. Starfa sem íþrótta- og sundkennari og einnig sem aðstoðarþjálfari hjá úrvalsdeildarliði Gróttu.

– Líturðu björtum augum til sumarsins?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Já, ég geri það. Finnst sumarið mjög skemmtilegur tími.

– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau?

Fótbolti, að ferðast og golf eru svona helstu áhugamálin. Óhætt að segja að ástandið hafi haft mikil áhrif á fótboltann og ferðalögin.

– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan?

Er mjög heimakær og líður best þar.

– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?

Íslenski boltinn mun taka stóran hluta af tíma mínum í sumar eins og svo oft áður. Mun þetta sumarið eyða miklum tíma á Seltjarnarnesi með mikilli eftirvæntingu. Nýti svo þann frítíma sem ég fæ með fjölskyldu og vinum.

– Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn?

Lokaundirbúningur fyrir Íslandsmótið var að fara í gang eftir langt undirbúningstímabil. Endurskoða þurfti allar æfingaáætlanir og aðlaga sig að breyttum aðstæðum fljótt. Það tókst að ágætlega. Mesti skellurinn var að æfingferð til Spánar var ekki farin, tilhlökkunin fyrir þeirri ferð var mikil eftir þennan vetur.

– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst?

Tilveran hefur verið alveg fín. Það er mjög margt sem hefur breyst, vinnutíminn er öðruvísi og svo hittir maður mun færri en venjulega. Þjálfunin er í gegnum tölvu og er það einstaklega skrítið og vera ekki í návígi við leikmennina. Sama á við umgengni við vini og vandamenn, en það hefur verið með öðru sniði en áður.

– Finns þér fólk almennt virða reglur tengdar samkomubanni?

Já, svona heilt yfir finnst mér fólk vera að standa sig vel. Finnst allir vera að reyna að gera sitt besta að fara eftir tilmælum þríeykisins.

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Kannski að við vorum sett aðeins í skammarkrókinn og fórum að átta okkur betur á hvað skiptir mestu máli í lífinu.

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Mest í gegnum síma og þessi helstu samskiptaforrit. Notum Zoom í þjálfuninni og hefur þetta allt saman gengið bara nokkuð vel.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Ætla að gera ráð fyrir því að ég sé heima með konunni, þannig að Jonni fengi þetta símtal. Það er bara mjög mikilvægt að heyra sem oftast í Jonna.

– Ertu liðtækur í eldhúsinu?

Er geggjaður í eldhúsinu, þá helst að aðstoða. Samdóma álit flestra.

– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Finnst skemmtilegast að grilla eitthvað gott með góðu fólki.

– Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Grilluð nautalund og Jonnasósa.

– Hvað geturðu ekki hugsað þér að borða?

Svið, furðulegt að ráðast svona beint á andlitið. Sviðasulta fer að sjálfsögðu í sama flokk.

– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Bananabrauð og kotasælubollur. Bæði mjög gott.

– Ef þú fengir 2000 krónur, hvað myndir þú kaupa í matinn?

Pulsur.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?

– Hefurðu unnið Hörð Axel í þriggjastigakeppni?

Já, tók hann með vinstri.

HÉR AÐ NEÐAN MÁ SVO LESA ALLT NÝJASTA TÖLUBLAÐ VÍKURFRÉTTA.