Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Töfrabragðasýning til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja í dag
Laugardagur 11. febrúar 2012 kl. 12:54

Töfrabragðasýning til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja í dag

Einar Mikael töframaður hefur verið duglegur að skemmta landanum að undanförnu og á dögunum hélt hann sýningu í Austurbæ sem vakti stormandi lukku. Einar er einn færasti töframaður landsins en hann er útskrifaður úr Hogwarts School of Witchcraft and Wizardy og er að taka masterinn í fjarnámi þessa stundina.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl


Einar Mikael á fjölda sýninga að baki og kenndi tæplega 2000 börnum töfrabrögð á síðasta ári.


Í dag, laugardag, ætlar Einar að halda fjölskylduskemmtun í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ þar sem framkvæmd verða töfrabrögð á heimsmælikvarða. Sýningin sem hefst kl. 15:00 verður 90 mínútna löng og er ætlum öllum aldurshópum. Aðeins kostar 1200 krónur inn og mun allur aðgangseyrir renna óskiptur til Velferðarsjóðs Suðurnesja.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25