Tjarnarselsbörn nutu veðurblíðunnar
Börnin á Tjarnarseli í Reykjanesbæ nutu veðurblíðunnar í morgun og fóru í góðan göngutúr niður að smábátahöfninni. Þar beið þeirra Tómas Knútsson, kafari og herforingi Bláa hersins, með ýmis konar sjávardýr sem hann hafði týnt í höfninni. Fengu börnin ýmsan fróðleik um dýrin úr viskubrunni Tómasar og höfðu gaman af.
Sjá myndir í myndasafninu hér á vf.is.
Mynd/elg