Tína rusl fyrir Danmerkurferð
Diddi og Veigar voru kampakátir þegar blaðamaður Víkurfrétta hitti á félagana við Sandgerðisveg í dag þar sem þeir voru að tína rusl. Í heildina voru 13 krakkar úr 9. bekk í Sandgerði sem tíndu rusl frá Rockville og niður að Sandgerðisbæ. Krakkarnir eru að safna sér fyrir skólaferð til Danmerkur og ef þau halda þessum dugnaði áfram er ekki ósennilegt að þau geti safnað sér fyrir heimsreisu.
VF-mynd/ Jón Björn: Diddi, til vinstri og Veigar, til hægri, við Sandgerðisveginn í dag