Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tímasetningar á þrettándabrennum
Sunnudagur 6. janúar 2008 kl. 13:26

Tímasetningar á þrettándabrennum

Þrettándabrennur hafa verið auglýstar í Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum í dag.

Í Vogum hefst dagskrá kl. 16.30 þegar álfar, tröll og aðrar verur leggja af stað frá félags- og íþróttamiðstöðinni, með kóng og drottningu í broddi fylkingar. Andlitsmálun verður fyrir börnin frá kl. 15.15 til 16.30. Kveikt verður í bálkestinum á áfangastað sem verður að þessu sinni vestan megin við íþróttahúsið.
Við brennuna verður flugeldasýning á vegum björgunarsveitarinnar Skyggnis, en að henni lokinni verður hátíðarhöldum haldið áfram í Vetrarsal Stóru-Vogaskóla. Þar verður sungið og trallað og mun foreldrafélag 7. bekkjar standa fyrir kaffisölu.
30% afsláttur verður á flugeldum hjá Skyggni og flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar verður opinn á laugardaginn frá kl 13:00-19:00 og á sunnudaginn  frá kl 13:00.

Í Grindavík hefjast hátíðarhöld í félagsmiðstöðinni Þrumunni með andlitsmálun fyrir krakkana frá kl. 16 til 18.

Kl. 19.30 verður svo safnast saman við Kvennó og gengið fylktu liði í blysför upp Víkurbraut, niður Ránargötu og að Saltfisksetrinu þar sem 7. og 8. fl. kkd. kvenna selur vöfflur og heitt kakó.

Dagskrá verður svohljóðandi:
Bæjarstjóri flytur ávarp.
Álfakóngur og álfadrottning syngja.
Tónlistarskólinn í Grindavík verður með atriði.
Búningakeppni unga fólksins. (Keppt verður um frumlegasta heimatilbúna búninginn. Mjög veglegir vinningar.)
Jólasveinar koma í heimsókn og syngja.

Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ verður nú haldin á nýjum stað.

Þrettándagleðin hefur undanfarin ár verið haldið við Iðavelli en ákveðið hefur verið að flytja hátíðarhöld niður að Ægisgötu (neðan Hafnargötu) þar sem aðalhátiðarhöld á Ljósanótt hafa farið fram.

Dagskrá hefst kl. 17:15 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að Ægisgötu.

Dagskrá verður svo sem hér segir

Kl. 17.30 Ægisgata
Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar mæta á staðinn.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja og Lúðrasveit Tónlistarskólans leika og syngja

Kl. 18.00  Bergið
Jólasveinar kveðja

Kl. 18.10 Bergið
Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

ATH  Bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024