Föstudagur 23. apríl 2004 kl. 13:00
Tilhugalíf á tjörninni í Sandgerði

Eitt af greinilegustu einkennum þess að vorið sé gengið í garð er tilhugalíf og varp fuglanna. Varptíminn er nú að komast á fullt skrið og eru fyrstu fuglategundirnar nú orpnar. Þar má nefna fálka, hrafna, tjaldi, svartþresti og starra, að því er Morgunblaðið greinir frá í morgun. Gæsapar hefur sést í tilhugalífi í hólma í tjörninni í Sandgerði, þar sem ljósmyndari Víkurfrétta tók meðfylgjandi mynd í gærkvöldi.
Allir helstu farfuglar eru komnir til landsins, fyrir utan óðinshana og kríu.