Þvörusleikir reyndi að smygla sér inn um glugga
Jólasveinar hafa komið víða við undanfarna daga og skemmt börnum sem og fullorðnum með uppátækjum sínum.
Þvörusleikir sagðist hann heita jólasveinninn á myndinni. Hann reyndi að koma sér í jólaboð sem haldið var í safnaðarheimili Grindavíkurkirkju sem Páll Jóhann Pálsson og Guðmunda Kristjánsdóttur héldu fyrir börn og barnabörn um helgina.