Þvílíkur unaður að fá nýbakað brauð á morgnana
Arnór Vilbergsson, organisti við Keflavíkurkirkju, fór í keppni um páskana við spúsu sína hvor gerði betri súrdeigsgrunn.
Hún vann!
HÉR ER VIÐTALIÐ Í VÍKURFRÉTTUM - SMELLIÐ HÉR!
– Hvernig voru páskarnir?
Páskarnir hafa verið einkar undarlegir fyrir mann sem vinnur í kirkju. Engin orgelleikur við messur í fyrsta skiptið í tuttugu ár, páskasálmarnir og tónið á bandi og fjölskyldan í allt of mikilli fjarlægð. Ég sakna fólksins míns, fjölskyldu og kóra.
– Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn?
Við hjónin keyptum okkur Nóa og Siríus, saltkaramellueggið. Ég slátraði mínu á tíu mínútum en konan á enn helminginn af sínu. Málshátturinn minn er: „Að biðja er mönnum misjafnt lagið.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?
Samskipti hafa aðallega farið í gegnum síma en þó hefur Zoom verið notað töluvert. Um páskana var fjölskyldan iðin við að vera í spurnarleikjum á „Kahoot“ og Zoomið þá notað. Í gengum tíðina hefur Messenger verið notað mikið á mínu heimili til að eiga samskipti við börn og barnabörn.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?
Amma fengi símtalið í dag, er búinn að vera á leiðinni að hringja í hana í of langan tíma.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19?
Lítið er hægt að blúsast yfir þessum fregnum. Svona er þetta bara. Þær kórferðir sem átti að fara í sumar verða þá bara að bíða. Ég á yndislegan pall og pott, nýjan bíl og kúlutjald. Þetta verður í lagi.
– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?
Ekkert er sjálfsagt! Allt í einu kemur lítil padda og snýr öllu á hvolf og ekkert er hægt að gera annað en að bíða hana af sér. Það sem áður var svo sjálfsagt, eins og hitta börnin, barnabörnin, ömmur og afa og foreldra, er allt í einu hættulegt!
– Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Ég er einungis liðtækur þegar kemur að frágangi. Hólmfríður heimilsfræðikennari hrósaði mér ekki oft en þegar ég var með tuskuna í hendinni átti hún ekki orð. „Þvílík sjón þegar drengurinn rennir yfir borðin,“ sagði hún oft.
– Hvað finnst þér virkilega gott að borða?
Ég held að súpukjöt sé að tikka inn sem uppáhaldsmaturinn minn. Auðvitað eru Wellington-steikur alltaf góðar. Kjötfars er líka í miklu uppáhaldi. En að öllu ólöstuðu er Villa borgarinn alltaf bestur (ekki samstarf).
– Hvað var í páskamatinn?
Í páskamatinn var lambahryggur frá Ásbrú, sveit foreldra minna.
– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?
Eins og áður sagði er ég ekki öflugur þegar kemur að matargerð. Ég elda þó eitt sem Guðný mín biður mig af og til að henda í ... smjörsteiktan humar.
– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?
Við fórum í smá keppni um páskana, ég og spúsa mín, um að gera súrdeigsgrunn. Kona vann og þvílíkur unaður að fá nýbakað brauð á morgnana. Þannig að síðasta sem var bakað á mínu heimili var súrdeigsbrauð á páskadagsmorgun.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn?
Fyrir 2000 kall mætti fá ýmislegt. Ég myndi kaupa rúgbrauð, síld, kjötfars, hvítkál og kartöflur þá er peningurinn að öllum líkindum uppurinn.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Jákvætt í vikunni er vitanlega að paddan er á undanhaldi. Allar þessar gjafir á sjúkrastofnanir eru fallegar. Snjórinn er á undanhaldi og veður að skána og það sjást fiskar í sjónum við Feneyjar.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Neikvætt í vikunni voru fregnir af mannshvarfi. Ömurlegt.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Hefur þú lært eitthvað undarlegt upp á síðkastið?
Já, að orðið „pogonophobia“ er orð yfir þá sem eru hræddir við skegg. Sem betur fer á það ekki við um frúna mína.