Þúsundir barna sungu inn Ljósanótt með Ingó veðurguð
Um tvöþúsund og fimmhundruð skóla- og elstu leikskólabörn í Reykjanesbæ sungu inn Ljósanótt 2017 með Ingó veðurguð við setningu hátíðarinnar í morgun við Myllubakkaskóla. Þegar söngkeppni hófst á milli kynja mátti heyra sönginn óma um allan bæ. Þannig verður ljósanótt, enda fjöldi tónlistarviðburða víða um bæinn allt til miðnættis á sunnudag auk ýmissa list- og menningarviðburða, keppna og afþreyingar. Að söng loknum hjá börnunum var stór Ljósanæturfáni dreginn að húni á hæstu flaggstöng landsins í skrúðgarðinum.
Að venju fór setningarathöfnin fram við Myllubakkaskóla. Svæðið var skreytt stórum ljósanæturblöðrum og hver skóli bar sinn einkennisfána og -lit. Samkór nemenda úr grunnskólum Reykjanesbæjar leiddi söng ljósanæturlagsins, Velkomin á Ljósanótt, og Meistari Jakob var sunginn á þremur tungumálum. Eftir mikið fjör, hopp, klapp og fagnaðarlæti var stóri ljósanæturfáninn dreginn að húni í skrúðgarði af fulltrúum allra grunnskólanna í Reykjanesbæ. Fáninn stækkar á hverju ári þegar við bætist einkennislitur skóla og stefnt er að því að fáninn verði sá stærsti á landinu.
Aldrei hafa eins mörg börn tekið þátt í setningarathöfn Ljósanæturhátíðar og nú, enda hefur íbúum fjölgað mikið að undanförnu. Grunnskólanemar eru nú tæplega 2400 af um 17.500 íbúum. Af heildarfjölda er um 19% af erlendu bergi brotnir. Hver viðburður rekur annan í dag. Púttmót verður við Mánagötu, Meistaraflokkur Keflavíkur og Nes ætla að takast á í knattspyrnu á Nettóvellinum og Skotdeild Keflavíkur býður upp á opinn dag. Ungmennin ætla bæði að skemmta sér á ljósanæturdiskói og í sundlaugarpartýi og sýningar verða opnar víða um bæinn. Kvöldinu lýkur með hjólbörutónleikum í Keflavíkurkirkju.
Veglegt myndasafn frá setningunni fylgir með fréttinni en meðfylgjandi myndir tóku Sólborg Guðbrandsdóttir og Rannveig Jónína Guðmundsdóttir.
Alla dagskrá má nálgast á http://ljosanott.is.