Bygg
Bygg

Mannlíf

Þú getur lært að verða áhugalaus um kynlíf
Mánudagur 29. september 2003 kl. 14:33

Þú getur lært að verða áhugalaus um kynlíf

Uppistandið „Hitt“ kennir þér að lækka lostann og hjálpar þér að öðlast fullkomna kynferðislega ófullnægju. Þetta er tilvalið námskeið fyrir alla þá sem vilja vinna meira og gera minna af „hinu.“ „Hitt“ er íslensk uppfærsla á uppistandi austurríska atferlisfræðingsins Bernhards Ludwigs um hvernig á að öðlast fullkomna kynferðislegu ófullnægju. Aðrar sýningar Ludwigs kenna fólki m.a. að fá hjartaáfall og að verða virkilega feitt. Blanda hans af staðreyndum og uppistandi hefur slegið í gegn um allan heim og núna er komið að því að kenna Íslendingum að gera „hitt“ og gera það betur. Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir nálgast þetta viðkvæma mál af svo hárfínni og vísindalegri nákvæmni að áhorfendur vita hreinlega ekki hvort þeir eiga að hlæja, gráta, skrifa lesendabréf eða bara drífa sig heim í rúmið. „Hitt“ er fullkomlega örugg lækning við húmorsleysi, tepruskap og fjölmörgum öðrum andlegum kynsjúkdómum. Verkið verður forsýnt í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ 9. og 10. október nk.


1. Allt sem þú vildir vita
2. Allt sem þú vissir ekki að þú vildir vita
3. Hlutir sem þú vildir að þú hefðir aldrei heyrt



Helga Braga um Helgu Brögu


Helga Braga Jónsdóttir, sporðdreki. Fædd 5.11.1964. Fyrsta stóra hlutverk: Lína Langsokkur. Komst inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun, alveg sjálfsagt mál. Hef leikið í Þjóðleikhúsinu, í Borgarleikhúsinu – var fastráðin þar um tíma – og svo mörg mörg hlutverk með Frú Emilíu, Þíbylju og allskonar leikhópum – útvarpi, sjónvarpi, bíó. Hef leikið í áramótaskaupum og allskonar skemmtiþáttum í Ríkissjónvarpinu og á Stöð 2.

Ég hélt alltaf að ég væri dramatísk leikkona, en þegar ég byrjaði í Fóstbræðrum missti ég algjörlega stjórn á ferlinum. Áður en ég vissi af var ég byrjuð með uppistand, farin að sýna magadans, leika í ostaauglýsingum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég stjórnaði meira að segja spjallþætti í anda Oprah Winfrey.

Ég hef stundað kynlífsrannsóknir frá unga aldri. Kynlíf hefur alltaf kveikt hressilega í mér. Fljótlega fékk ég meiri áhuga á fræðilegu hliðinni og hef svolítið verið að stúdera kynlífsþerapíu, m.a. í Ástralíu, Rúmeníu og Afríku þar sem ég var að vinna með ættbálkum. Það var MJÖG gaman. Svo tók ég þátt í rannsóknum með Frank Farelly og Paul Watzlawick sem kynntu mig fyrir „provocative therapy“, en á þeim tíma var ég einmitt að læra um „the evolution of desire“ í Stanford háskólanum.

Skömmu síðar komst ég í einkaþjálfun til Hugh Hefner og það var eiginlega þar sem ég fann mig. Hann hefur hjálpað mér mjög mikið. Hugh er algjör snillingur og ljóshærðu tvíburasysturnar eru líka þrælgáfaðar, það býr nefnilega eitthvað undir ljósa hárinu. Þær eru að vísu þríburar, það eru mjög fáir sem vita það. Við kynntumst ótrúlega vel innbyrðis og þau kynntu mig fyrir ýmsu í sambandi við kynlíf.

Ég sótti námskeiðið hjá Bernhard Ludwig, bæði í Vínarborg og Amsterdam og það sem heillaði mig er að hann er í raun og veru að hjálpa fólki.
„Hitt“ er svona sambland af uppistandi, fyrirlestri og hópþerapíu, og er unnið upp úr alvöru rannsóknum á alvöru fólki. Bernhard fannst ég tilvalin til að stjórna þessu á Íslandi. Hann er ofsasætur gæi. Sköllóttur. Og svo var hann alltaf að bjóða mér út að borða og svona. En í raun og veru snýst þessi sýning ekki um mig eða mína persónu. Ég er fyrst og fremst milliliður. Ég er bara tæki til að koma sannleikanum á framfæri: Ég er hjálpartæki ástalífsins. Hvort er Bernhard Ludwig skemmtilegasti vísindamaður eða vísindalegasti skemmtikraftur í heimi? Sennilega er hann hvort tveggja. Bernhard Ludwig beið glæstur akademískur ferill í atferlisfræði, en eftir áralangar rannsóknir og fræðimennsku flosnaði hann upp úr námi, og allt í einu var hann kominn upp á svið með sýningu ætlaða offitusjúklingum, eða einsog hann orðaði það sjálfur, „námskeið sem kennir fólki að verða virkilega feitt.“ Þessi samblanda af uppistandi og þerapíu sló undir eins í gegn, og síðan hefur hann bætt tveimur öðrum kúrsum á námskrána, námskeið í að fá hjartaáfall og „Hitt“ sem er að hans sögn námskeið í að vera kynferðislega ófullnægður.


Bernhard Ludwig

Bernhard Ludwig er í dag eitt virtasta nafnið í austurríska gamanleikrita heiminum. Árið 1999 hlaut hann Karl-verðlaunin, ein virtustu leikhúsverðlaun Austurríkis og hafa uppistands-námskeið hans verið á sviði Niedermann kabarettsins í Vínarborg nánast samfleitt í 10 ár. Sem fræðimaður er hann jafndáður og hann er umdeildur. Í stað þess að veifa prófskírteini framan í „sjúklingana“ mætir hann þeim vopnaður breiðu brosi. Hann virðist eiga jafnauðvelt með að flytja boðskap sinn á alþjóðlegum vísindaráðstefnum eins og á lítt þekktum, óhefðbundnum heilsuræktarmiðstöðvum.

Bernhard hefur ferðast með „Hitt“ um alla Evrópu, og fyllir stór sem smá leikhús á hverju kvöldi, hvort sem það er í Þýskalandi, Frakklandi, Sviss eða Hollandi. Að auki hefur hann veitt öðrum skemmtikröftum blessun sína til að útbreiða fagnaðarerindið á öðrum tungumálum. Á þessu ári munu því sex leikarar flytja sýninguna undir handleiðslu Ludwigs - í Danmörku, Hollandi, Svíþjóð, Bretlandi, Bandaríkjunum og nú á Íslandi.

En afhverju telur Bernhard Ludwig kabarettinn vera áhrifaríkustu kynlífsmeðferðina? „Fólkið sem á við raunverulegan vanda að stríða myndi aldrei treysta kynlífsfræðingi fyrir vandamálum sínum. Það trúir ekki á meðferðarleiðina,“ segir hann. „Stærstu vandamálin í kynlífinu tengjast því hvað fólk er lokað og taugaóstyrkt. Fólk hefur áhyggjur af frammistöðunni, óttast að eitthvað fari úrskeiðis, er sífellt að bíða eftir reynslu sem er einstök og tekur öllu öðru fram. Þeim mun meira álag sem fylgir kynlífinu, þeim mun verr tekst fólki til með það.“

„Það er í rauninni ekkert hlægilegt við boðskap minn,“ segir Ludwig. „Í honum er ekki eitt ósatt orð!“



Þau sögðu:


„Ég er of feiminn til að láta í ljós langanir mínar nema þegar ég er að tala í símann við fólk sem ég þekki ekki neitt.“ 
Garry Shandling

„Ég veit ekkert um kynlíf af því að ég var alltaf gift.“ 
Zsa Zsa Gabor

„Það er svo langt síðan að ég hef stundað kynlíf að ég man ekki hver batt hvern.“
 Joan Rivers

„Er kynlíf sóðalegt? Bara ef það er gert rétt.“ 
Woody Allen

„Kynlíf er sú uppbyggilegasta, fallegasta og náttúrulegasta reynsla sem hægt er að kaupa með peningum.“ 
Steve Martin

„Þegar ég er góð þá er ég  mjög góð en þegar ég er óþekk þá er ég betri.“
Mae West

„Ég er feginn að vera ekki tvíkynhneigður, ég mundi ekki þola að fá höfnun bæði frá körlum og konum.“  Bernard Manning

„80% af karlmönnum í Bandaríkjunum halda framhjá, restin er í Evrópu.“
Jackie Mason

„Í Bandaríkjunum er kynlíf þráhyggja, á öðrum stöðum í heiminum er það staðreynd.“
Marlene Dietrich

„Ég elska kynlíf. Það er ókeypis og maður þarf ekki að nota sérstaka skó.“ 
Anon
Bílakjarninn
Bílakjarninn