Bygg
Bygg

Mannlíf

Miðvikudagur 9. febrúar 2000 kl. 16:28

Þú getur haft mikil áhrif á eigin heilsu

Sigrún Ólafsdóttir Hjúkrunarframkvæmdastjóri skrifar: Í hugum margra er heilsugæslustöð einungis læknastöð. Almenningur veit um þá þjónustu sem læknar veita en fáir leiða hugann að annari þjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum almennt. Mikil áhersla er lögð á forvarnarstarf innan heilsugæslunnar. Við mæðraeftirlit starfa tvær ljósmæður og einn sjúkraliði auk lækna. Þar er fylgst með líðan móður og fósturs á meðgöngunni, móðurinni veitt fræðsla um heilsusamlegt líferni og boðið er uppá foreldrafræðslu. Við ungbarnaeftirlit starfa þrír hjúkrunarfræðingar auk lækna. Þar fer fram mikið forvarnrastarf sem er í formi bólusetninga og ýmiskonar fræðslu. Fylgst er með barninu alveg frá fæðingu. Fyrstu skoðanirnar fara fram inni á heimili viðkomandi en síðan koma foreldrar með barnið á heilsugæslustöðina í bólusetningar og eftirlit alls tíu sinnum og oftar ef þörf krefur en þá tekur skólaheilsugæslan við. Við skólaheilsugæslu starfa þrír hjúkrunarfræðingar og einn sjúkralið auk lækna. Þar er fram haldið því forvarnarstarfi sem hófst í ungbarnaeftirliti með bólusetningum, eftirliti og enn meiri fræðslu. Þett er eflaust sá vettvangur sem er hvað mikilvægastur m.t.t. forvarnarstarfsins. Við heimahjúkrun starfa þrír hjúkrunarfræðingar, einn sjúkraliði og fjórarófaglærðar konur. Þeir sem þiggja heimahjúkrun eru að stærstum hluta aldraðir en það er óháð aldri hverjir þurfa á þeirri þjónustu að halda. Auk þess að sinna aðhlynningar- og hjúkrunarstörfum veitir heimahjúkrun skjólstæðingum sínumfræðslu eftir því sem við á. Inni á stöðinni er hjúkrunarfræðingur með móttöku alla virka daga frá kl 09:00 - 11:30 og sér um sprautugjafir, sáraskiptingar, blóðþrýstingsmælingar o.fl. Einnig veitir hjúkrunarfræðingur ráðgjöf varðandi heilbrigt líferni, svo sem um hollt mataræði og hreyfingu og þeir sem þess óska geta komið í regluleg stuðningsviðtöl. Það þykir sjálfsagt að hafa greiðan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu en gleymum ekki að hver einstaklingur getur haft mikil áhrif á eigin heilsu. Sigrún Ólafsdóttir Hjúkrunarfram- kvæmdastjóri
Bílakjarninn
Bílakjarninn