Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

„Þú ferð ekki í Útsvars-liðið“
Ólafur Helgi Kjartansson.
Laugardagur 24. janúar 2015 kl. 09:00

„Þú ferð ekki í Útsvars-liðið“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vill flytja til Suðurnesja.

Ólafur Helgi Kjartansson tók við embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum síðastliðið haust. Áður starfaði hann sem sýslumaður á Selfossi, einn þriggja á 77 árum. Ólafur Helgi kann mjög vel við sig á Suðurnesjum og vill flytja til Reykjanesbæjar en bíður eftir því að geta selt hús sitt á Selfossi. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Ólaf Helga og spurði út í áherslur í starfinu, samstarfsfólkið og hvaða eiginleika góður yfirmaður þarf að búa yfir. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ólafur Helgi ásamt nokkrum starfsbræðra sinna, þegar hann var nýtekinn við embætti lögreglustjóra.

„Ég vil búa hér og mun flytja hingað. Ég er ánægður þar sem ég er og get unnið. Ég er búinn að sjá út hvar ég vil helst vera en ætla ekkert að tjá mig nánar um það strax,“ segir Ólafur Helgi kíminn og bætir við að Reykjanesbær sé ágætur í heild sinni en stundum mætti umræðan vera á jákvæðari nótum. „Mannlegri tilveru fylgja alltaf vandamál, þau hafa sést afskaplega vel í þeim störfum sem ég hef unnið.“ Ólafur Helgi tók t.a.m. fyrir 144 skilnaðarmál sem fulltrúi sýslumanns á sex árum. Þegar hann var skattstjóri vestur á fjörðum var hann með nefið nánast inni á hvers manns heimili. Einnig var hann sýslumaður á þeim tíma sem snjóflóðin dundu yfir sem kostuðu Ísafjarðarsýslu 35 mannslíf á 18 mánuðum. „Menn þurfa alltaf að vera vakandi fyrir því sem gerist og hérna á Suðurnesjum er áherslan á umferðaröryggi en góður árangur hefur náðst í þeim málum hér. Þrátt fyrir að umferðin sé orðin meiri en fyrir nokkrum árum hafa ekki verið jafn fá banaslys í umferðinni í áratugi.“ 

Samstarfsverkefni gegn heimilisofbeldi heldur áfram

Komið hefur fram að Miðnesheiði er mannskæðasta heiði á landinu og Ólafur Helgi segir að því miður hafi það sýnt sig þennan stutta tíma sem hann hefur verið í starfi að sú heiði sé mannskæð og því þurfi að hafa vakandi auga fyrir þeim ógnum sem sé að finna í umhverfinu. „Það skiptir líka máli að við séum undir það búin að bregðast við og ekki síst hvernig hægt er að minnka áhættuna.“ Ólafur Helgi hefur haft mikinn áhuga á almannavörnum alla tíð og var t.a.m. formaður Blóðgjafafélags Íslands í 10 ár og 12 ár í stjórn þess. „Ég er sérstaklega hrifinn því hugtaki að vera fornæmur - að nema það sem gerist á undan.“ Í því samhengi er Ólafur Helgi spurður um samstarfsverkefni lögreglu og félagsmálayfirvalda á Suðurnesjum um heimilisofbeldi. „Að sjálfsögðu heldur forvarnaverkefnið áfram og þessi hugsun er að breiðast út, eins og fram hefur komið á höfuðborgarsvæðinu. Ég á von á því að fá einhverja af mínum gömlu félögum hingað í heimsókn fjótlega til þess að kynna þeim þennan þátt. Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt.“ 

Ráðin tekin af fórnarlömbum

Í Colorado í Bandaríkjunum, þar sem Ólafur Helgi heimsótti lögregluna í Denver fyrir tveimur áratugum, var löggjöfin svo hörð að ef lögregla hafði grun um heimilisofbeldi þá bar henni leggja fram kæru óháð því hvort fórnarlambið hefði hug á að leggja fram kæru. Fórnarlamb gat heldur ekki dregið kæru sína til baka. „Þar eru ráðin einfaldlega tekin af fórnarlömbum og kerfi byggt upp í kring með samvirkni félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og lögreglu og síðan er reynt að virkja almenning til að benda á ef eitthvað fer úrskeiðis,“ segir Ólafur Helgi, því stundum viti fólk um miklu fleiri tilvik en hægt sé að taka á. „Menn skulu ekki eiga von á að þetta breytist hér, starfinu verður fylgt áfram. Það ber minna á því þegar karlmenn vilja sinna þessum málaflokki heldur en konur og það er alltaf sorgarsaga að baki hverju máli, sérstaklega varðandi börn. Heimilisofbeldismál er þessu földu afbrot í samfélaginu en það þarf hugarfarsbreytingu, ekki bara hjá þeim sem vinna að þessum málum, heldur almenningi.“ 

Væri þægilegra í einu húsnæði 

Varðandi einhverjar áherslubreytingar í starfi segist Ólafur Helgi leggja fyrst og fremst leggja áherslu á að liðið sé ein heild og starfi vel saman. „Mér sýnist það vera einfaldlega þannig þó að alltaf sé hægt að gera eitthvað til góðs. „Það væri þægilegra ef við gætum verið í einu húsnæði en það er líklega langur vegur í það. Samvinna allra skiptir líka miklu máli í þessu starfi og það tekur tíma að venjast nýju fólki, líka í brúnni.“ Spurður um hvaða eiginleika góðir yfirmenn þurfi að bera segir Ólafur Helgi þá þurfa að geta tekið ákvarðanir, leyst úr ágreiningsmálum og laðað menn til samstarfs. Þegar blaðamaður mætti á skrifstofu embættis lögreglustjóra höfðu margir samstarfsmenn hans orð á því hversu þægilegur og skemmtilegur yfirmaður Ólafur Helgi væri. Hann segir að honum þyki vænt um að heyra það og að hafa einnig heyrt slíka um sögn frá fyrri vinnustöðum. „Ég vil ná sem mestum krafti úr þeim mannafla sem við höfum og úr því fé sem við höfum til ráðstöfunar. Í svona störfum verja menn oft lengri tíma með samstarfsfólki en fjölskyldu og þess vegna skiptir svo miklu máli að vera almennileg hvert við annað og geta skipst á skoðunum. Gagnrýni er ekki útásetningur,“ segir Ólafur Helgi og leggur áherslu á að samstarfsfólk sem hann hefur hitt hafi verið afskaplega elskulegt, þægilegt og umburðarlynt í sinn garð. 

Ólafur Helgi bregður á leik í Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt nokkrum starfsbræðrum sínum. 

Tók forystuna sem barn

Ólafur Helgi fæddist í Reykjavík árið 1953 og segist hafa notið fullkomins frelsins sem barn, bæði hjá foreldrum og afa og ömmu. „Ég lærði að fást við ýmsar aðstæður í umhverfinu sem ég ætti erfitt með að horfa upp á afkomendur mína gera eða börn í dag. Ég lærði einfaldlega að koma mér út úr þeim með þessu brölti. Sennilega hef ég verið sá sem tók forystuna í hópnum sem strákur.“ Spurður segir hann aldrei hafa hvarflað að sér sem barni að enda í þessu starfi. „Ég hafði áhuga á því að verða prestur. Sennilega vegna þess að þegar maður fór í messu var það presturinn sem stýrði og hafði eitthvað til málanna að leggja og lagði út af einu og öðru. Ég var þannig gerður að ef ég vildi ná einhverju vildi ég fá aðra með mér til þess.“ 

Hefur gift 300 manns

Á Selfossi var Ólafur Helgi þriðji sýslumaðurinn á 77 árum, í tæp þrettán ár, fyrir utan að hafa starfað hjá báðum fyrirrennurum sínum. Spurður um muninn á fyrri störfum og starfi lögreglustjóra segir Ólafur Helgi hann m.a. liggja í því að hann komi úr starfi þar sem hann var bæði sýslumaður og fór með lögreglustjórn. „Þar var ég með alls kyns stjórnsýsluverkefni eins og nauðungarsölur og skilnaðarmál og einnig hef ég gift 300 manns um ævina. Það er eitt af því ljúfasta sem ég geri í starfi mínu. Þá eru allir svo ánægðir þegar þar gerist og forréttindi að fá að taka þátt í slíku hjá fólki.“ Þegar best lét var Ólafur Helgi mest með 51 starfsmann á Selfossi, þar af 28 í lögreglunni. „Hér eru starfsmennirnir yfir 100 og umdæmið minna í ferkílómetrum talið. En það er líka miklu stærra er varðar umsvifin. Hér búa fleiri en í Árnessýslu en þar eru 7000 sumarbústaðir og Árnessýsla því stærsta „borgin“ um helgar og á sumrin, utan Reykjavíkur.“ Þá sé áherslan hér mikið til á landamæragæslu og flugvöllinn. „Farþegar sem komu til landsins í fyrra í gegnum flugstöðina voru um 970 þúsund. Reyndar má segja að flestir ferðamenn sem koma hér í gegn og inn í landið endi í Árnessýslu sem hluta af gullna þríhyrningnum. Það má því segja að ég sé kominn nær upprunanum,“ segir Ólafur Helgi. 

Rolling Stones og Útsvar

Það er ekki hægt að sleppa Ólafi Helga nema spyrja hann út í tvennt sem hann er hvað þekktastur fyrir; að hafa, sem líklega mesti aðdáandi hljómsveitarinnar Rolling Stones á Íslandi, hitt söngvarann Mick Jagger og vera keppandi í spurningaþættinum Útsvari. Ólafur Helgi segir það hafa verið ótrúlega upplifun að hitta goðið fyrir algjöra tilviljun á Ísafirði árið 1999. Sá dagur hefði verið einn sá allra minnistæðasti í sínu lífi. Spurður segist hann svo ekki hafa verið beðinn um að vera í Útsvars-liði á Suðurnesjum. „Það voru eiginlega einu fyrirmælin sem ég fékk frá framkvæmdastjóra sveitarfélagsins Árborgar þegar ég fór hingað: Þú ferð ekki í Útsvars-liðið! Svo er aldrei að vita hvað mér dettur í hug,“ segir Ólafur Helgi og hlær. 

VF/Olga Björt

Mynd af Ólafi Helga og Mick Jagger er af vefsíðunni menningarstadur.123.is.