Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þróttmiklir í Vogum í 90 ár
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 1. nóvember 2022 kl. 09:20

Þróttmiklir í Vogum í 90 ár

Ungmennafélagið Þróttur í Vogum fagnaði 90 ára afmæli um liðna helgi. Félagið var stofnað þann 23. október 1932 en alla tíð hefur verið mjög líflegt starf í félaginu. Starfsemin hefur verið í miklum blóma síðustu ár og er það m.a. að þakka uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu. Þannig eru rétt tæpir þrír áratugir síðan íþróttamiðstöð var opnuð í Vogum með sundlaug, parketlögðum íþróttasal og aðstöðu til lyftinga. Með íþróttamiðstöðinni fjölgaði íþróttagreinum innan Þróttar og þarna fóru Vogamenn að stunda badminton, júdó og sund. Núna er t.a.m. æfður körfuknattleikur undir merkjum Þróttar í íþróttamiðstöðinni. Utan við íþróttamiðstöðina er svo sjálfur knattspyrnuvöllurinn þar sem Þróttur lék síðasta sumar í næstefstu deild en veran í þeirri deild á nýliðnu sumri er besti árangur sem Þróttur hefur náð í knattspyrnusögu félagsins. Liðið féll reyndar aftur niður í 2. deild í haust.

En aftur að afmælisfagnaðinum í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla. Þar var tekið á móti næstum 200 afmælisgestum í mikið skreyttan sal, þar sem munir úr sögu ungmennafélagsins fengu að njóta sín á borðum og veggjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á þessum tímamótum. Borghildur Sigurðardóttir, fyrsti varaformaður Knattspyrnusambands Íslands, veitti þeim Marteini Ægissyni og Gunnari J. Helgasyni silfurmerki KSÍ.

Ungmennafélagið Þróttur veitti nokkrar heiðursviðurkenningar á þessum stóru tímamótum. Helgi Guðmundsson, Júlía Halldóra Gunnarsdóttir, Tinna Sigurbjörg Hallgrímsdóttir, Kristján Árnason, Björgunarsveitin Skyggnir og Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar fengu öll viðurkenningu með þökk fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og að gera gott félag betra. 

Félaginu bárust peningagjafir frá Kvenfélaginu Fjólu, Gullási og Sveitarfélaginu Vogum í tilefni tímamótanna. Þá voru veitingar og hlaðborð var í boði Hérastubbs bakara í Grindavík. 

Nokkur ávörp voru haldin á tímamótunum. Petra Rut Rúnarsdóttir, formaður UMFÞ, rakti sögu ungmennafélagsins í grófum dráttum og þá ávörpuðu Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri, og Birgir Örn Ólafsson, formaður bæjarráðs, samkomuna. Það gerðu einnig Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags, Rúnar Arnarsson, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar og fyrrum stjórnarmaður KSÍ og Borghildur Sigurðardóttir, fyrsti varaformaður KSÍ. Að endingu kom Sóli Hólm og skemmti fólki með uppistandi og börn fengu andlitsmálningu í tilefni dagsins.

Þróttur Vogum // 90 ára afmæli