Þröngt á þingi í Friðargöngu
Hin árlega Friðarganga í Grindavík fór fram í gærmorgun. Að þessu sinni var aðal dagskráin á nýja torginu við íþróttamiðstöðina sem er einmitt hannað fyrir viðburði eins og þennan, segir á heimasíðu Grunnskóla Grindavíkur.
Þar voru líklega á milli 800 og 900 manns og fór vel um mannskapinn þótt þröngt hafi verið á þingi. Gangan er samstarfsverkefni skólastofnanna í Grindavík. Hver skólastofnun gekk að nýja torginu við íþróttamiðstöðina og voru flestir með vasaljós í hönd. Markmið göngunnar er að efla samkennd og samhug með því að boða jákvæðni, gleði og kærleika í samfélaginu, segir í fréttinni.
Barnakór Grindavíkur söng við undirleik Renötu Ívan. Sú nýjung var að þessu sinni að Halldóra Halldórsdóttir kennari og Harpa Hallgrímsdóttir leikskólakennari stýrðu núvitund fyrir alla viðstadda sem mæltist ákaflega vel fyrir. Sr. Elínborg Gísladóttir flutti friðarávarp.
Friðargangan er ákaflega hátíðarleg og skemmtileg stund sem er orðin ómissandi þáttur á aðventunni í Grindavík, segir að endingu í fréttinni.
Hér má sjá myndir!