Þrjár sýningar framundan á söngleiknum Slappaðu af!
Sjötta sýning Leikfélags Keflavíkur og NFS á söngleiknum „Slappaðu af” verður í kvöld, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 20:00.
Sögusvið verksins er 7. áratugur síðustu aldar þar sem kallast á í suðupotti allsherjar togstreitu ást og hatur, sorg og gleði, vinstri og hægri í tíðaranda kaldastríðsins og baráttu kynjanna. Óhætt er að segja að sýningin sé samfelld skemmtun frá upphafi til enda er verkið farsakennd samsuða vinsælla popplaga, gríns, söngs og dansatriða. Höfundur verksins er Felix Bergsson. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð og danshöfundur Bryndís Einarsdóttir.
Næstu sýningar eru annað kvöld, föstudaginn 12. Nóvember og sunnudaginn 14. Nóvember. Sýningarnar hefjast kl. 20:00 og er miðasala opnuð kl. 19:00 sýningardagana. Miðapantanir í síma 421 2540.
VFmynd/elg.