Þrettándinn haldinn hátíðlegur í Reykjanesbæ
Þrettándagleði og álfabrenna verður haldin föstudaginn 6. janúar og hefst með skrúðgöngu frá Reykjaneshöll kl. 19:30.
Dagskrá hefst í Reykjaneshöll kl. 18:30 en þar verður boðið upp á andlitsmálun fyrir yngstu krakkana, leiktæki og heitt kakó.
Dagskrá á Iðavöllum hefst kl. 19:50 með álfabrennu, tónlist og söng. Álfakóngur og drottning mæta á staðinn ásamt Grýlu, Leppalúða, jólasveinum og ýmsum púkum.
Karlakór Keflavíkur, kvennakór Suðurnesja og Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leika og syngja.
Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes hefst kl. 20:20.
Flugvallarvegur verður lokaður á milli Sunnubrautar og upp á Reykjanesbraut ofan Iðavalla á milli kl. 18:30 og 22:00:
Minnt er á bílastæði við Fjölbrautaskólann, íþróttahúsið við Sunnubraut og Samkaup.