Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ
Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin 6. janúar við Ægisgötu.
Stutt dagskrá hefst kl. 18:00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.
- Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar
- Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes og Léttsveit, Djasshljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.
- Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar.
- Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.
ATH. Bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12