Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ
Mánudagur 3. janúar 2011 kl. 15:45

Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ

Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin 6. janúar við Ægisgötu. Dagskrá hefst kl. 18.00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.

Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar. Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar. Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes, Léttsveit og Trommusveit Tónlistarskólans og tröllastelpan Fjóla taka þátt í dagskránni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12.