Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 6. janúar 2010 kl. 10:00

Þrettándagleði og álfabrenna í Reykjanesbæ

Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin undir kvöld við Ægisgötu, á hátíðarsvæði Ljósanætur. Dagskrá hefst kl. 18:00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði. Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar. Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes og Léttsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12.