Þrettándagleði í Vogum á morgun
Þrettándagleðin í Vogum verður haldin á morgun, laugardag, kl 17:00. Fresta þurfti gleðinni í vikunni vegna veðurs. Kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar, hefst við félagsmiðstöð kl 17:00. Gengið verður niður Hafnargötuna, inn á göngustíg í átt að skólanum og endað hjá brennunni við skólann. Brennan er í boði Lions.
Eftir brennuna verður haldið í Tjarnarsalinn, þar sem verður smá gleði, sungið og dansað. 10. bekkur verður með kaffi- og kakósölu.
Allir 12 ára og yngri fá glaðning. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá skemmtilega búninga. Nú er um að gera að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman.
Boðið verður uppá andlitsmálun fyrir yngri krakkana í félagsmiðstöðinni frá klukkan 16:00-16:50.