Bygg
Bygg

Mannlíf

Þrettán strákar í sveinsprófi
Sunnudagur 16. mars 2003 kl. 15:37

Þrettán strákar í sveinsprófi

Þrettán strákar víðsvegar að af landinu eru nú að taka sveinspróf í vélvirkjun við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Prófið hefur staðið yfir í þrjá daga en það hófst á föstudag með bóklegu verkefni. Nú um helgina hafa hendur verið látnar standa fram úr ermum og verklegi þátturinn fengið að njóta sín. Þar hafa menn verið að fást við risastórar skipsvélar, kanna slit á vélarhlutum, smíða varahluti og tekið verkefni í rafsuðu.Fjölbrautaskóli Suðurnesja er mjög vel tækjum búinn til að kenna vélvirkjun en þar eru m.a. skipsvélar, ljósavélar og ýmislegt fleira. Þannig var að koma inn á gólf í Fjölbraut ljósavél ofan af Keflavíkurfluvelli sem í gegnum árin hefur verið varaaflsstöð fyrir brautarljósin. Vélin hefur eingöngu verið keyrð í fimmtíu klukkustundir og telst því varla tilkeyrð! Skólinn gæti því í raun framleitt alla sína raforku sjálfur - en þarf til þess leyfi frá Landsvirkjun.

Af sveinsprófinu er það að frétta að nú bíða nemendurnir þrettán spenntir eftir niðurstöðu prófsins.

Mynd: Úr sveinsprófinu í dag. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Bílakjarninn
Bílakjarninn