HSS
HSS

Mannlíf

Þórkötlustaðaréttir verða 20. september
Föstudagur 12. september 2008 kl. 09:18

Þórkötlustaðaréttir verða 20. september


Réttardagurinn í Þórkötlustaðarétt í Grindavík verður laugardaginn 20.september. Smalað verður á afrétti Grindvíkinga, föstudaginn 19. september og dregið verður í dilka laugardaginn 20.september um kl.14.00. Réttardagurinn er einn af þeim dögum sem bjóða upp á líf og fjör jafnt fyrir börn og fullorðna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ratleikurinn "Finna féð" verður á dagskrá í nágrenni við réttina. Leikurinn gengur út á að svara léttum spurningum um sauðkindina og geitina. Dregið verður úr réttum svörum og þrír ullarvinningar í verðlaun.

Í Auðsholti verður boðið upp á kjötsúpu í stóru tjaldi og haustmarkaður verður í anddyri reiðhallarinnar. Þeir sem áhuga hafa á að selja á haustmarkaði hafi samband í Saltfisksetriðrið s. 4201190 fyrir 19.september. Nánari upplýsingar um viðburði á www.grindavik.is eða í Saltfisksetrinu.

Af vef Grindavíkur.