Þóra Jónsdóttir sýnir á Kaffitári
Myndlistarkonan Þóra Jónsdóttir mun halda sýningu í húsnæði Kaffitárs í Innri-Njarðvík í ágústmánuði. Þar mun Þóra sýna myndir sem hún málaði í vetur en að hennar sögn eru verkin flest abstrakt en einnig er hún að vinna með blóm í verkum sínum. Verkin eru unnin í olíu en hún leitaði til þriggja mismunandi kennara við vinnu verkanna.
Þóra byrjaði fyrst að mála í Amager malerier - tegninger skólanum í Danmörku 1985 en eftir að hún flutti heim árið 1989 hefur hún sótt fjölda námskeiða. Hún hefur haldið fjölda sýninga hér um slóðir í gegnum tíðina.