Þjóðhagfræðinemar á ferð
Nemendur í Þjóðhagfræði 103 við Fjölbrautaskóla Suðurnesja skruppu til Reykjavíkur til að fræðast um Hagstofuna og Seðlabankann. Eftir skemmtilega kynningu í Hagstofunni þar sem nemendur fengu fræðslu um hvaða upplýsingar Hagstofan hefur að geyma var farið í Seðlabankann. Stefán Jóhann Stefánsson tók á móti nemendum í Seðlabankanum og fræddi þá um hlutverk hans. Eftir göngutúr um bankann og spjall við starfsmenn fengum nemendur gómsætar veitingar í boði bankans.
Að heimsókn lokinni í Seðlabankanum var tekið á það ráð að fara í Kringluna og allir þeir veraldlegu hlutir sem nemendur versluðu sér þurftu að vera góðum rökum studdir undir gagnrýnum augum kennarans. Ferðin heppnaðist vel og voru bæði nemendur og kennari ánægðir með þessa tilbreytingu frá hefðbundinni kennslu.
Almenn þjóðhagfræði
Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni hagfræðinnar. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra. Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi. Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun hlutfallareiknings, vísitalna, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum.
Tekið af vef Fjölbrautaskóla Suðurnesja