Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Mannlíf

Þjóðbúningamessa á Vatnsleysuströnd
Laugardagur 20. júní 2026 kl. 13:28

Þjóðbúningamessa á Vatnsleysuströnd

Skemmtilegur viðburður var á Vatnsleysuströnd í gær þar sem haldin var þjóðbúningamessa í Knarrarneskirkju, lítilli heimakirkju við Minna-Knarrarnes. Þangað var mættur myndarlegur hópur fólks klæddur í íslenska þjóðbúninga.

Á myndinni má sjá myndarlegar konur í fallegum þjóðbúningum og regnhlífarnar voru ekki til að verjast regni, heldur kríuskít, því krían er aðgangshörð núna með fjölmörg hreiður allt í kringum kirkjuna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Nánar verður fjallað um viðburðinn í Víkurfréttum næstu viku.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100