Þingmenn að smala atkvæðum í Þórkötlustaðarétt?

Er það samdóma álit þeirra sem best þekkja að fé hafi komið vænt af fjalli og að beitarhólfið þjóni sínu hlutverki vel. Björn Haraldsson verslunarmaður og ábúandi í Auðsholti bauð gestum og gangandi kjötsúpu í stóru tjaldi sem reist hafði verið á bæjarhlaðinu og myndaðist góð stemning í tjaldinu.
Fleiri voru að smala um helgina því vel flestir þingmenn kjördæmissins voru mættir í Þórkötlustaðarrétt á sunnudaginn.