Bygg
Bygg

Mannlíf

Þingmaðurinn fagnar sextugsafmæli í dag með veislu og myndlistarsýningu
VF ræddi við Ásmund nýlega en kappinn fagnar 60 ára afmæli í dag.
Fimmtudagur 21. janúar 2016 kl. 09:51

Þingmaðurinn fagnar sextugsafmæli í dag með veislu og myndlistarsýningu

Ásmundur Friðriksson hefur verið í eldlínunni að undanförnu og að venju gustar um þingmanninn en hann fagnar 60 ára afmæli í dag. Ásmundur býður til veislu í sal Eldborgar í Svartsengi í dag kl. 17-20 og vill sjá sem flesta samfagna sér á tímamótunum.
Ásmundur ætlar einnig að halda upp á afmæli sitt á gömlu heimaslóðunum, í Vestmannaeyjum og gerir það á laugardaginn. Í tilefni tímamótanna verður hann með málverkasýningu en einnig verður vegleg skemmtidagskrá í veislunni eins og Ása er einum lagið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn