Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þetta er vinsælasta mynd Suðurnesja
Vinsælasta myndin: Stóri Hólmur, ljósmyndari Jón Óskar Hauksson
Þriðjudagur 30. október 2018 kl. 09:21

Þetta er vinsælasta mynd Suðurnesja

Frábærum sýningum að ljúka í Duus-húsum

Safngestir Duus-húsa kusu vinsælustu ljósmyndina á sýningunni Eitt ár á Suðurnesjum og tóku 607 manns þátt í kosningunni. 

Úrslitin voru þessi:
1. sæti  Stóri Hólmur, ljósmyndari Jón Óskar Hauksson
2. sæti  Vitinn í storminum, ljósmyndari Sigurþór Sumarliðason
3. sæti   Skessuhellir í klakaböndum, ljósmyndari Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmyndasýningin Eitt ár á Suðurnesjum er afrakstur samkeppni sem Listasafn Reykjanesbæjar stóð fyrir. Öllum Suðurnesjamönnum var boðið að senda inn myndir sem lýstu daglegu lífi og náttúru á Suðurnesjum á einu ári og alls bárust 350 myndir. Sex ljósmyndir sigruðu og fóru í hópinn „Bestu myndirnar“ og þær áttu ljósmyndararnir Guðmundur Magnússon, Ólafur Harðarson, Jón Óskar Hauksson, Haukur Hilmarsson og Hilmar Bragi Bárðarson en 30 aðrar myndir fengu sérstaka viðurkenningu sem góðar ljósmyndir. Allar þessar myndir og fjöldi annarra eru á sýningunni sem lýkur sunnudaginn 4.nóvember. 

Síðasta tækifæri til að njóta góðra sýninga

Sýningin Eitt ár í Færeyjum er önnur ljósmyndasýning sem lýkur þessa helgi en hún er líka afrakstur samkeppni. Norræna húsið í Þórshöfn bauð öllum Færeyingum að senda inn myndir sem lýstu daglegu lífi og náttúru í Færeyjum á einu ári og nú má sjá vinningsmyndirnar 12 útprentaðar í Bíósal Duus Safnahúsa ásamt öðrum innsendum myndum á skjám.

Sýningin Endalaust er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og Handverks og hönnunar og inniheldur verk úr endurunnum efnivið. Um er að ræða fjölbreytt og ólík viðfangsefni og koma 20 hönnuðir að sýningunni sem lýkur nú um helgina.

Sýningunni...Svo miklar drossíur lýkur líka á sunnudaginn. Silver Cross barnavagnar hafa verið vinsælir á Íslandi í langan tíma og er sýningin samstarfsverkefni Byggðasafns Reykjanesbæjar og Thelmu Björgvinsdóttur, sem hefur kynnt sér sögu vagnanna hér á landi. Á sýningunni er fjöldi glæsilegra vagna frá ýmsum tímum, auk fjölda ljósmynda af vögnum í notkun.

2. sæti  Vitinn í storminum, ljósmyndari Sigurþór Sumarliðason

3. sæti   Skessuhellir í klakaböndum, ljósmyndari Hilmar Bragi Bárðarson