„Þetta bjargaði lífi mínu“
Samvinna, starfsendurhæfing Suðurnesja, var stofnuð árið 2008 og hafa nú 40 einstaklingar lokið starfsendurhæfingu en síðasta útskrift var í desember 2010. Samvinna veitir starfsendurhæfingu einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og/eða félagslegra erfiðleika hafa verið utan vinnumarkaðar til lengri eða skemmri tíma. „Markmið með endurhæfingunni er að einstaklingarnir komist í vinnu eða nám þegar endurhæfingarferlinu lýkur. Einnig er það markmið Samvinnu að auka lífsgæði þátttakenda og fjölskyldna þeirra þannig að bæði einstaklingurinn og fjölskyldan standi sterkari að vígi,“ sagði Gerður Pétursdóttir, verkefnastjóri Samvinnu. „Hver einstaklingur er með sinn persónulega ráðgjafa og gera þeir áætlun eftir þörfum hans. Einstaklingurinn sem sækir um hjá Samvinnu hefur átt við einhverja erfiðleika að stríða, verið í neyslu, einhverskonar veikindi eða verið atvinnulaus í einhvern tíma.“
Þátttakendur Samvinnu koma frá öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum og eru á aldrinum 18-55 ára, bæði karlar og konur. Starfsendurhæfing Samvinnu er alhliða endurhæfing þar sem unnið er með félagslega, læknisfræðilega, námslega og sálfræðilega þætti. Víkurfréttir heyrði hljóðið í nokkrum útskrifuðum nemendum frá Samvinnu nú á dögunum.
„Ég fékk slæmt fæðingarþunglyndi og var einnig með félagsfælni. Ég fór ekkert út úr húsi, því ég einfaldlega þorði því ekki. Ég var orðin það slæm að ég fór ekki einu sinni út í búð að versla mat í ísskápinn nema að taka inn tvær kvíðatöflur,“ sagði Vilhelmína Arnardóttir. „Nú í dag er ég í Skrifstofuskólanum. Ég er búin með Menntastoðir og stefni á áframhaldandi nám í Keili en ég væri ekki á þeim stað í lífinu í dag ef það væri ekki fyrir Samvinnu.“
Stefán Örlygsson lenti í alvarlegu fjórhjólaslysi fyrir nokkrum árum og sagði líf sitt ekki hafa verið upp á marga fiska fyrir slysið en eftir það lá leiðin beinustu leið niður. „Mér var slétt sama um allt og alla. Ég var bara einfaldlega búinn að gefast upp. Ég gat ekki farið út að ganga með hundinn minn nema eftir eitt á nóttunni til að vera algjörlega viss um að enginn annar væri á ferðinni, svo slæmt var ástandið,“ sagði Stefán. „Ég man svo vel eftir fyrsta viðtalinu hjá Samvinnu en það var mjög átakanlegt. Ég hafði aldrei leitað á náðir annarra, hvorki hjá félagsþjónustunni né vinum svo þetta bjargaði algjörlega mínu lífi og líður mér miklu betur í dag.“ Stefán stefnir nú á að klára háskólabrú Keilis og ætlar sér þaðan í fjölmiðlafræði í Keili. „Ég hef mikinn áhuga á rannsóknarblaðamennsku og langar mig til að skrifa umdeilanlega pistla í blöðin.“
Námsþáttur endurhæfingarinnar er skipulagður í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) og dæmi um námsfög eru enska, íslenska og stærðfræði. Náms- og starfsráðgjafar MSS kenna þátttakendum lífsleikni og starfsfræðslu ásamt því að veita þeim náms- og starfsráðgjöf. „Námið er allt frá einni önn upp í þrjár annir en það fer algjörlega eftir einstaklingnum. Ef einstaklingurinn er tilbúinn eftir eina önn, þá er honum hjálpað í áframhaldandi nám eða vinnu. Eftir námið hjá Samvinnu tekur svo við tveggja ára eftirfylgd með hverjum og einum,“ sagði Gerður. Í endurhæfingunni sækja þátttakendur Samvinnu einnig fjármálaráðgjöf, skapandi starf, heilsurækt, næringarfræði og starfskynningar. Starfsendurhæfing Samvinnu fer að mestu leyti fram í hópum og nýir hópar hefjast í febrúar og september ár hvert.
„Hóparnir eru mjög samrýndir. Við höldum hópinn og fylgjumst vel með að allir í hópnum séu að standa sig,“ sagði Védís Hlín Guðmundsdóttir, fyrrverandi nemandi Samvinnu. Védís missti atvinnuna árið 2008 og sá ekki fram á að ná sér upp úr erfiðleikunum sem hún var komin í. Henni var svo bent á Samvinnu af vinkonu sinni og sló hún til. „Ég veit ekki hvar ég stæði í dag ef ég hefði ekki látið verða af því að sækja um í Samvinnu. Samvinna er hundrað prósent fyrir alla og þarf fólk að stunda þetta eins og þetta sé vinnan sín, ekki með hangandi hendi ef fólk vill framfarir,“ sagði Védís sem stundar nú nám í Skrifstofuskólanum. Henni stendur einnig til boða starf, en Védís sagði að hún þyrfti að finna út hvort þetta starf hentaði sér vegna meiðsla sem hún hlaut í kjölfar slyss.
Starfsemin fer fram að Krossmóa 4. Tekið er á móti tilvísunum allt árið og hægt er að nálgast tilvísunareyðublöð á heimasíðu Samvinnu. Tilvísunum til Samvinnu hefur fjölgað stöðugt og hefur því myndast nokkur biðlisti. Starfsendurhæfing Samvinnu tekur að jafnaði um 18 mánuði, eða þrjár annir og sumarönn. Lengd endurhæfingarinnar er þó mjög einstaklingsbundin og getur því verið mun styttri og fer alveg eftir aðstæðum hverju sinni. Starf Samvinnu er í stöðugri mótun og innihald endurhæfingarinnar breytist eftir aðstæðum og þörfum þátttakenda og samfélagsins hverju sinni. Frekari upplýsingar um Samvinnu má finna á heimasíðunni www.starfs.is.
[email protected]