Þekktir þú kana?
Leitað er að munum frá fjölskyldum bandarískra hermanna frá árunum 1996-2006 vegna sýningar sem opnar á Ásbrú maí 2013.
Horft er til hversdagslegra hluta og húsgagna og má þar nefna sófasett, sófaborð, borðstofuborð og stóla, bollastell og eldhúsáhöld, skrautmuni og myndir, barnarúm, barnaleikföng sem og rúm og fatnað.
Samstarfsaðilar eru Byggðasafn Reykjanesbæjar og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Vinsamlegast hafið samband í síma 862 2208 eða sendið póst á netfangið [email protected]