Þekkir þú þessar glæsilegu konur?
Þessar glæsilegu konur fögnuðu opnun nýrrar verslunar Stapafells veturinn 1971-2. Byggðarsafn Reykanesbæjar birti þessa mynd á Facebooksíðu sinni í dag og óskar þar eftir aðstoð bæjarbúa við að bera kennsl á konurnar. Þar koma lesendur Víkurfrétta sterkir inn, en þeir sem telja sig þekkja til kvennanna geta haft samband við Byggðarsafnið í síma 420-3240 eða á Facebook síðu þeirra.