Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Þegar við fæðumst þá fáum við á okkur ákveðinn stimpil
Fimmtudagur 31. ágúst 2017 kl. 06:00

Þegar við fæðumst þá fáum við á okkur ákveðinn stimpil

- Listamaðurinn Helgi Hjaltalín opnar sýningu í DUUS húsum

Listamaðurinn Helgi Hjaltalín heldur einkasýninguna Horfur í Duus húsum og er sýningunni lýst þannig;
(Jaðarsettur) miðaldra kalmaður staðsettur í Höfnum reynir að útskýra fyrir sér ástand heimsins og hverjar horfunar séu.
Í gegnum miðla myndlistarinnar þreifar hann á og gerir tilraun til að skilja og læra meira um þessa veröld sem við byggjum.

Lokahnykkurinn
„Þetta er síðasti hnykkurinn á þremur sýningum en ég er mikið búinn að spekúlera í því hvernig við skiptum okkur í hópa. Til dæmis þegar við fæðumst þá fáum við ákveðinn stimpil á okkur, hvítur, Íslendingur, karlkyn/kvenkyn og síðan förum við að trúa á eitthvað og svo framvegis. Ég hef velt þessum svokölluðu stimplum fyrir mér lengi og tengingu þeirra við ofbeldi. Verkin eru í raun og veru opin, ég set undirtóninn og svo getur hver og einn túlkað þetta á sinn hátt.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Margir miðlar
Nokkrir miðlar myndlistarinnar eru á sýningunni, vatnslitamyndir, skúlptúrar og þrykkmyndir eru meðal þess sem verður til sýnis og hefur töluverð vinna farið í verkin. Á sýningunni eru meðal annars hús máluð úr vatnslitum og hefur Helgi gerst svo frægur að búa í sumum þeirra. „Eins og þú sérð þá eru þau öll alveg lokuð og svo er stöng fyrir utan öll húsin, bæði vatnslitamyndirnar og skúlptúruna.“
„Á sýningunni eru „skúlptúrar“  og eru þeir gerðir eftir vatnslitamyndunum. Fyrir framan myndirnar og skúlptúruna er stöng sem á meðal annars  að tákna „flokkinn“ okkar eða þá flokka sem við skiptum okkur í. Húsin tákna okkar daglega líf, þar sem við festum okkur inn í húsunum í okkar eigin heimi, höldum alltaf að það sé allt í lagi inni hjá okkur eða látum það a.m.k. líta út fyrir að það sé þannig. Stöngin er hins vegar alltaf til staðar þar sem við segjumst tilheyra ákveðnum flokk.“
Önnur stöng í raunstærð sem Helgi er búinn að renna og pússa er á sýningunni og er sú stöng sú sama og er á myndunum, fyrirmyndin. Önnur stöng hangir á vegg í salnum og hana er Helgi er ekki búinn að renna, bara líma en báðar eru þær límdar með lituðu lími. Hún er akkúrat lengdin á vinnustofunni hans en hann þurfti að koma henni út um gluggann á vinnustofunni sinni vegna lengdarinnar. Þegar Helgi er spurður hvort vinnan á bakvið stöngina sé ekki mikil þá segir hann að þetta taki furðu stuttan tíma, hann noti alls kyns samansafn af viðarbútum og lími stöngina saman. Það tekur tvær til þrjár vikur að vinna hana, mesti tíminn fari í að laga  búta sem brotna og þarf að líma aftur saman.

Mikil vinna að baki
Vatnslitamynd prýðir einn vegg sýningarinnar og hefur farið mikil vinna í að mála hana. „Myndin er úr mörgum bútum og úr alls kyns pappír,  þetta er búið að taka langan tíma eða sirka ár þar sem þetta er kvöld og helgar vinna. Ég teiknaði myndina upp, bjó til fleka og skipti henni niður í fjóra parta,  ég vildi vinna hana í minni einingum og vann hvern part alveg sér. Myndin er vatnslitamynd þannig að litirnir koma mismunandi út, áferðin er alltaf ný og stundum vissi ég ekki nákvæmlega hvar ég var staddur í ferlinu og þurfti jafnvel stundum að giska. Aðrir litir eru meira áberandi í henni vegna þess að ég notaði aldrei sama grunninn, gerði það meðvitað.“                                                                                                                              
Svokölluð „áróðursskilti“ verða einnig til sýnis á sýningunni, og munu þau hanga í lausu lofti, þetta eru ýmis skilti með alls kyns slagorðum á ensku.  Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 31. ágúst kl. 18:00 í Duus Safnahúsum og eru allir hjartanlega velkomnir.