The Lamont Cranston Blues Band með tónleika á Ránni
Rythma- og blúsfélag Reykjanesbæjar stendur fyrir tónleikum með The Lamont Cranston Blues Band frá Minneapolis í Bandaríkjunum á morgun, fimmtudaginn 8. júní n.k.
Tónleikarnir verða haldnir á Ránni og hefjast þeir kl. 21:00.
Keflvísku blúshundarnir Júlli (trommur), Kiddi (bassi), Addi (gítar), og Þór Óskar (gítar og söngur), sjá um að hita upp fyrir snillingana. Miðaverð er kr. 2.000.
Frekari upplýsingar um tónleikana og starf Rythma og blúsfélagsins má finna á vef þeirra. Smellið hér.