„Thanksgiving” nýtur mikilla vinsælda
– Þakkargjörðarveisla Langbest flytur yfir í Officeraklúbbinn
Þakkargjörðarhátíð eða Thanksgiving var haldin á Keflavíkurflugvelli eins lengi og Varnarliðið var hér á landi en lagðist af með brotthvarfi hersins. Ingólfur Karlsson og Helena Guðjónsdóttir á veitingastaðnum Langbest á Ásbrú ákváðu svo árið 2009 að endurvekja hefðina á sjálfan þakkargjörðardaginn. Fyrsta árið mættu 100 manns í þakkargjörðarveislu en á síðasta ári voru matargestirnir orðnir 300 talsins og mikill fjöldi varð frá að hverfa. Það var því ljóst að gera þurfti ráðstafanir í ár miðað við þær vinsældir sem veislan er farin að njóta. Þakkargjörðarveislan í ár hefur því verið færð frá Langbest yfir í Officeraklúbbinn á Ásbrú.
Ingólfur hafði samband við Ásbjörn Pálsson veitingamann í Menu veitingum sem hefur Officeraklúbbinn á sínum snærum. Þeir hafa nú snúið bökum saman og ætla að bjóða upp á þakkargjörðarveislu næsta fimmtudag, 26. nóvember, bæði í hádegi og um kvöldið. Veislan í hádeginu er hugsuð fyrir vinnustaðahópa og einstaklinga en um kvöldið verður áherslan á fjölskyldur. Það tíðkaðist á tímum Varnarliðsins að íslenskum fjölskyldum starfsmanna Varnarliðsins var boðið á völlinn á þakkargjörðardaginn þar sem slegið var upp veislu í Officeraklúbbnum og Messanum. Þangað mættu hundruð Keflvíkinga og Njarðvíkinga í kalkúnaveislu.
Ingólfur Karlsson kokkaði ofan í Varnarliðsmenn í tólf ár, bæði í Messanum og í Rockville. Þar komst hann yfir gamla og vinsæla uppskrift sem hann hefur haldið sig við æ síðan og verður notuð í veislunni næsta fimmtudag.
Þakkargjörðin er ein heilagasta hátíð Bandaríkjamanna og maturinn sem boðið er uppá er hátíðarmatur. Í grunninn er veislan byggð á kalkúnabringu. Einnig er í boði gljáð skinka og með þessu er boðið upp á sætar kartöflur með sykurpúðum. Þá er kartöflumús og tilheyrandi sósa og að sjálfsögðu fylling auk þess sem sultuð trönuber eru borin fram með matnum. Þá er hefð fyrir bökum ýmiskonar í eftirrétt.
Þakkargjörðarveislan sem haldin verður í Officeraklúbbnum næsta fimmtudag verður hlaðborð þar sem fólk borgar eitt gjald við innganginn og getur svo borðað á sig gat. Þar verður mikið af meðlæti og svo verða matreiðslumenn í sal sem skera kalkúninn niður á diska fyrir fólk. Þeir Ingólfur og Ásbjörn vonast til að sjá sem flesta en borðpláss verður fyrir a.m.k. 300 manns í hádegi og svo aftur um kvöldið. Verðinu er stillt í hóf eða 2950 kr. á mann, 7-12 ára greiða barnagjald og 6 ára og yngri fá frítt. Þá mun hluti af aðgangseyri renna í söfnun Sigvalda Lárussonar fyrir börn. Nánar má lesa um viðburðinn í auglýsingu í Víkurfréttum í dag.